Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn (IMF) tilkynnti á föstudaginn að hann hyggst veita íslenskum stjórnvöldum 2,1 ma.bandaríkjadala lán til tveggja ára til að styðja við efnahagslega uppbyggingu, hjálpa til við að endurreisa trúverðugleika bankakerfisins og skapa stöðugleika krónunnar. Í ljósi efnahagsástandsins er stuðningur sjóðsins kærkomin. Hann eflir gjaldeyrisvarasjóð Seðlabankans, veitir stjórn efnahagsmála aukinn trúverðugleika og liðkar fyrir lánveitingum annarra þjóða.
Ísland er ekki eitt í því að fá stuðning frá IMF um þessar mundir. Sjóðurinn er í viðræðum við nokkrar þjóðir um hugsanlega lánveitingu og efnahagsráðgjöf við að taka á áhrifum hinnar alþjóðlegu lánsfjárkreppu sem sjóðurinn segir vera einn alvarlegasta fjármálaskell sem heimshagkerfið hefur fengið síðan í kreppunni miklu 1930. Sjóðurinn hefur meira en 200 milljarða bandaríkjadala í sjóði sínum til að lána og getur dregið á viðbótar lánalínur við hóp af aðildarríkjum sínum.
Stöðugleiki krónunnar og uppbygging fjármálakerfisins forgangsmál
Sjóðurinn segir að stöðugleiki krónunnar sé forsenda þess að hægt sé að ná tökum á verðbólgunni og gera starfsumhverfi fyrirtækja eðlilegra sérstaklega hvað varðar erlend viðskipti. Að undangegnu þessu tímabili stöðugleika segir sjóðurinn líklegt að krónan muni styrkjast umtalsvert. Í þessu ljósi má telja líklegt að núverandi höftum í gjaldeyrisviðskiptum verði létt í áföngum á næstunni og að krónunni verði fleytt á ný eftir ákveðinn aðlögunartíma.
Efnahagsaðstoð sjóðsins hefur það að markmiði að styðja við traust bankakerfi með áherslu á verkferla og eftirlit í takti við alþjóðlega staðla. Sjóðurinn leggur þannig áherslu á virkt fjármálakerfi sem forsendu fyrir virki hagkerfisins. Aðstoðin hefur það einnig að markmiði að tryggja trausta fjármálastefnu hins opinbera. Framundan er talsverð áskorun í þeim efnum þar sem stjórnvöld horfast í augu við kostnað við endurskipulagningu bankakerfisins ásamt tekjusamdrætti og auknum útgjöldum vegna niðursveiflu hagkerfisins. Mynda þarf slaka í ríkisfjármálum til skamms tíma til að mæta samdrættinum en skapa aðhald til lengri tíma til að tryggja endurgreiðslu lána og varanlegan vöxt hagkerfisins.
Samkomulag IMF og Íslenskra stjórnvalda fer nú til samþykktar hjá stjórn sjóðsins og er talið að það ferli getið tekið um tíu daga. Verði það samþykkti mun sjóðurinn veita íslenskum stjórnvöldum strax 833 milljóna dollara lán en restin af láninu verður greidd síðar. (IB)